UM AVALON

Avalon er heilunarmiðstöð þar sem veitt er ráðgjöf, heilun og kennsla í andlegum fræðum auk þess sem Avalon gefur út bækur um andleg málefni.

Undirrituð, Eldey Huld Jónsdóttir, starfrækir Avalon sem er til húsa á Bakkastöðum 165, 112 Reykjavík og með starfstöð hjá Guðspekisamtökunum í Reykjavík, Nýju Avalon miðstöðinni á Hverfisgötu 105 2. hæð.

Eldey Huld er kennari (B.ed.) og félagsráðgjafi (MSW) að mennt og hefur í rúm 30 ár lagt stund á dulspeki (guðspeki) og sinnt kennslu í hugleiðslu, heilun og guðspeki hjá Guðspekisamtökunum í Reykjavík, í Guðspeki heilunarskólanum og hjá Avalon, auk þess að starfa sem grunnskólakennari um árabil og síðar félagsráðgjafi. Í Avalon tengir Eldey Huld saman menntun sína sem kennari og félagsráðgjafi og þjálfun í hugleiðslu og andlegri iðkun ásamt andlegri heilun. Hlutverk félagsráðgjafans er meðal annars að hjálpa fólki að takast á við líf sitt þegar staðið er frammi fyrir veikindum, atvinnumissi, samskiptaerfiðleikum eða öðrum áskorunum sem geta valdið tímabundnu eða langvarandi uppnámi eða álagi.

Avalon stendur fyrir ýmsum fyrirlestrum og námskeiðum um andleg mál, einkum tengd guðspeki. Þá hefur Avalon skipulagt námskeið og aðrar uppákomur með gestum erlendis frá. Sem dæmi má nefna þá var Vianna Stibal höfundur theta-heilunar gestur Avalon árin 2005 og 2006 og Asher Quinn (Asha), nýaldartónskáld, hélt tónleika í Salnum í Kópavogi á vegum Avalon árið 2012.

RÁÐGJÖF OG HEILUN:

Boðið er upp á viðtöl og meðferð fyrir einstaklinga og pör. Nánari upplýsingar undir flipanum Meðferð í boði.

KENNSLA:

Nám í Guðspeki-heilunarskólanum liggur niðri sem stendur. Fyrirlestrar og styttri námskeið sem Eldey Huld stendur fyrir eru auglýst hér og á facebooksíðu Avalon, Avalon.heilun.kennsla.o.fl. Einnig á heimasíðu og facebooksíðu Guðspekisamtakanna í Reykjavík, Nýju Avalon miðstöðvarinnar Nyjaavalon og www.nyjaavalon.is

BÓKAÚTGÁFA:

Avalon hefur gefið út bækurnar:
Heilum af hjartans list, höfundur Eldey Huld Jónsdóttir.
Helgistjórn jarðar, Meistarar Viskunnar, höfundur Eldey Huld Jónsdóttir.

Karmalögmálið, lögmál orsaka og afleiðinga, höfundur Eldey Huld Jónsdóttir

Lögmál endurholdgunar, þróun mannsins, höfundur Eldey Huld Jónsdóttir

Farðu upp og leitaðu Guðs,höfundur Vianna Stibal.
Farðu upp og starfaðu með Guði,höfundur Vianna Stibal.

ÖNNUR ÚTGÁFA:

Eldey Huld leiðir Plánetuhugleiðslur úr bókinni 17 þrep til fullkomnunar sem Ananda Tara Shan hefur skrifað. Um er að ræða 18 hugleiðslur á 9 geisladiskum. Þetta eru hugleiðslurnar:

Hrynjandi alheimsins og Sólin

Tunglið og Júpíter

Jörðin og Merkúr

Venus og Neptúnus

Satúnus og Mars

Vúlkan og Plútó

Úranus og Vega

Minerva og Síríus

Ceres og eyðimerkuræfingin