Meðferð

Grunnur að þeirri meðferð sem boðið er upp á er andleg heilun. Ásamt henni er veitt viðtalsmeðferð þar sem reynsla mín sem félagsráðgjafi og nám í mismunandi meðferðarvinnu er undirstaða viðtalsins.
Undirrituð er með löggilt starfsleyfi sem félagsráðgjafi MSW og kennari B.ed.
Árið 2022 sótti ég enn fremur nám í EMDR meðferð í Vancouver í Kanada. Að námi og handleiðslu lokinni hjá dr. Esta Porter viðurkenndum EMDR kennara hjá alþjóðasamtökum EMDR www.emdria.com fékk ég réttindi til að starfa sem EMDR meðferðaraðili.
Þá hef ég sótt námskeið í IFS meðferð árið 2024 bæði í Toronto, Kanada og rafrænt hjá dr. Frank Andersen og nokkur rafræn námskeið í tilfinningavinnu svo sem Emboying emotions hjá dr. Raja Selvam.

Undirrituð hefur unnið eftir UDANA-heilunarkerfi Guðspekisamtakanna (e. The Theosophical Fellowship)í áratugi. Kerfið byggir meðal annars á andlegri orkuvinnu með geislunum sjö og sjónsköpun. Andleg heilun er undirstaða meðferðarinnar eins og fram hefur komið.

Eldey Huld Jónsdóttir

Tímapantanir sendið fyrirspurn á eldey@avalon.is