Um Avalon

Avalon er heilunarmiðstöð þar sem veitt er ráðgjöf, heilun og kennsla í dulspekilegum fræðum auk þess sem Avalon gefur út bækur um andleg málefni.

Eldey Huld Jónsdóttir starfrækir Avalon sem er með starfstöð hjá Guðspekisamtökunum í Reykjavík, Nýju Avalon miðstöðinni á Hverfisgötu 105, 2. hæð, í Reykjavík.

Eldey Huld er kennari (B.ed.) og félagsráðgjafi (MSW) að mennt og hefur í um 40 ár lagt stund á dulspeki (guðspeki) auk þess að kenna hugleiðslu, heilun og guðspeki hjá Guðspekisamtökunum í Reykjavík, í Guðspeki-heilunarskólanum og á vegum Avalon. Í Avalon tengir Eldey Huld saman menntun sína og reynslu sem kennari og síðar félagsráðgjafi og þjálfun í hugleiðslu, andlegri iðkun og heilun. Eldey Huld hefur um árabil starfað sem félagsráðgjafi og sótt sér viðbótarmenntun í áfallafræðum. Hlutverk félagsráðgjafa er m.a. að aðstoða og ráðleggja fólki að takast á við líf sitt þegar staðið er frammi fyrir erfiðum áskorunum s.s. veikindum, atvinnumissi, samskiptaerfiðleikum eða öðrum vandamálum sem geta valdið tímabundnu eða langvarandi uppnámi eða álagi.

Avalon hefur staðið fyrir fyrirlestrum og námskeiðum um andleg mál tengd guðspeki.
Þá hefur Avalon skipulagt námskeið og aðrar uppákomur með gestum erlendis frá. Sem dæmi var Vianna Stibal höfundur Theta-heilunar gestur Avalon árin 2005 og 2006 og Asher Quinn (Asha), nýaldartónskáld, hélt tónleika í Salnum í Kópavogi á vegum Avalon árið 2012.

Ráðgjöf og heilun:

Boðið er upp á viðtöl og meðferð í andlegri heilun. Nánari upplýsingar eru undir flipanum Meðferð í boði.

Kennsla:

Nám í Guðspeki-heilunarskólanum liggur niðri. Fyrirlestrar eða styttri námskeið sem Eldey Huld stendur fyrir eru auglýst hér og á facebooksíðu Avalon sem má finna hér: Avalon.heilun.kennsla.o.fl. Einnig á heimasíðu og facebooksíðu Guðspekisamtakanna í Reykjavík, Nýju Avalon miðstöðvarinnar. Linkar eru hér: Nyjaavalon og www.nyjaavalon.is

Bókaútgáfa:

Avalon hefur gefið út eftirfarandi bækur. Höfundur er Eldey Huld Jónsdóttir:
Hjarta mitt, um mikilvægi hjartastöðvarinnar (nýjasta bók höfundar)
Geislarnir sjö
Heilum af hjartans list
Helgistjórn jarðar, Meistarar Viskunnar, 2. útgáfa aukin og endurskrifuð
Karmalögmálið, lögmál orsaka og afleiðinga
Lögmál endurholdgunar, þróun mannsins

Avalon hefur enn fremur gefið út bækur Vianna Stibal:

Farðu upp og leitaðu Guðs – uppseld
Farðu upp og starfaðu með Guði – uppseld

Hægt er að kaupa bækurnar undir flipanum Útgáfa/bóksala