Bóksala Avalon-útgáfunnar

Nýtt: Bókin Hjarta mitt, um mikilvægi hjartastöðvarinnar er komin út og fæst hér á sölusíðunni, í Pennanum og Betra lífi.

Avalon bókaútgáfan var stofnuð árið 2004 þegar ákveðið var að gefa út kennsluefni Guðspeki-heilunarskólans eftir að starfsemi hans hætti. Fimm bækur voru gefnar út í byrjun meðal annars um kennslu í hugleiðslu og andlegri heilun, Helgistjórn jarðar, Geislana sjö, Lögmál endurholdgunar og Karmalögmálið. Nýjasta bókin, Hjarta mitt kom út í júní 2026. Hún fjallar um mikilvægi hjartastöðvarinnar, þau tímamót sem mannkynið stendur frammi fyrir og þær erfiðu áskoranir sem felast í opnun hjartans. Að auki kemur höfundur inn á sálfélagslegar rannsóknir á líðan fólks og mikilvægi sjálfsvinnu auk þess að segja frá áralangri reynslu sinni í að vinna að opnun hjartans.