Um Avalon

Avalon er heilunarmiðstöð þar sem veitt er ráðgjöf, heilun og kennsla í andlegum fræðum auk þess sem Avalon gefur út bækur um andleg málefni.

Undirrituð, Eldey Huld Jónsdóttir, starfrækir Avalon sem er með starfstöð hjá Guðspekisamtökunum í Reykjavík, Nýju Avalon miðstöðinni á Hverfisgötu 105, 2. hæð.

Eldey Huld er kennari (B.ed.) og félagsráðgjafi (MSW) að mennt og hefur í rúm 30 ár lagt stund á dulspeki (guðspeki) og sinnt kennslu í hugleiðslu, heilun og guðspeki hjá Guðspekisamtökunum í Reykjavík, í Guðspeki heilunarskólanum og hjá Avalon, auk þess að starfa sem grunnskólakennari um árabil og síðar félagsráðgjafi. Í Avalon tengir Eldey Huld saman menntun sína sem kennari og félagsráðgjafi og þjálfun í hugleiðslu og andlegri iðkun ásamt andlegri heilun. Hlutverk félagsráðgjafans er meðal annars að hjálpa fólki að takast á við líf sitt þegar staðið er frammi fyrir veikindum, atvinnumissi, samskiptaerfiðleikum eða öðrum áskorunum sem geta valdið tímabundnu eða langvarandi uppnámi eða álagi.

Avalon hefur staðið fyrir ýmsum fyrirlestrum og námskeiðum um andleg mál, einkum tengd guðspeki.
Þá hefur Avalon skipulagt námskeið og aðrar uppákomur með gestum erlendis frá. Sem dæmi má nefna þá var Vianna Stibal höfundur Theta-heilunar gestur Avalon árin 2005 og 2006 og Asher Quinn (Asha), nýaldartónskáld, hélt tónleika í Salnum í Kópavogi á vegum Avalon árið 2012.

Ráðgjöf og heilun:

Boðið er upp á viðtöl og meðferð fyrir einstaklinga og pör. Nánari upplýsingar undir flipanum Meðferð í boði.

Kennsla:

Nám í Guðspeki-heilunarskólanum liggur niðri. Fyrirlestrar eða styttri námskeið sem Eldey Huld stendur fyrir eru auglýst hér og á facebooksíðu Avalon, Avalon.heilun.kennsla.o.fl. Einnig á heimasíðu og facebooksíðu Guðspekisamtakanna í Reykjavík, Nýju Avalon miðstöðvarinnar Nyjaavalon og www.nyjaavalon.is

Bókaútgáfa:

Avalon hefur gefið út eftirfarandi bækur. Höfundur er Eldey Huld Jónsdóttir:
Geislarnir sjö
Heilum af hjartans list
Helgistjórn jarðar, Meistarar Viskunnar, 2. útgáfa aukin og endurskrifuð
Karmalögmálið, lögmál orsaka og afleiðinga
Lögmál endurholdgunar, þróun mannsins

Avalon hefur enn fremur gefið út bækur Vianna Stibal

Farðu upp og leitaðu Guðs
Farðu upp og starfaðu með Guði

Hægt er að kaupa bækurnar
hér á sölusíðunni.