Brené Brown doktor í félagsráðgjöf er þekkt víða um heim fyrir rannsóknir sínar á hugrekki, skömm, berskjöldun og hluttekningu. Brown er framúrskarandi rannsakandi og fyrirlesari og hefur sem dæmi, þegar þetta er skrifað, setið á topp-5 lista TED-talks í rúm 10 ár með um 57 milljónir áhorfa á erindi sitt Power of vulnerability auk þess sem fimm bóka hennar hafa setið efst á metsölulista New York Times. Árið 2019 var Brené Brown fyrst rannsakenda til að fá fyrirlestur sinn The Call to Courage kvikmyndaðan og sýndan á Netflix efnisveitunni.
Í þessari grein er fjallað um nýjustu bók Brené Brown sem kom út í lok árs 2021, The Atlas of the Heart (Vegakort hjartans) sem fjallar um þann ofurkraft sem felst í því að þekkja tilfinningar sínar og tengsl tilfinninga, hugsana og gjörða. Greinin var birt í Tímariti félagsráðgjafa árið 2022.
Greinin er hér Vegakort_hjartans_Brene_Brown