Avalon heilunarmiðstöðin á rætur í guðspeki
Um árabil hefur Eldey Huld lagt stund á guðspeki undir handleiðslu Anöndu Töru Shan (1946-2002) sem var guðspekilegur kennari og stofnandi The Theosophical Fellowship. The Theosophical Fellowship eða Guðspekisamtökin eru með höfuðstöðvar í Daylesford í Ástralíu og miðstöðvar víða meðal annars hér á landi. Eldey Huld hef verið í forsvari fyrir miðstöð Guðspekisamtakanna í Reykjavík, Nýju Avalon miðstöðina frá árinu 1989 en miðstöðin er með aðsetur á Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík. Á sama tímabili hefur hún stundað Shan-guðspeki-hugleiðslu ásamt því að vinna með Udhana-heilunarkerfið sem er andleg heilun á grunni hinna sjö geisla. Hvor tveggja var miðlað af Anöndu Töru Shan.
Orðið Avalon vísar til sagnanna um Artúr konung og riddara hringborðsins sem voru upp á fimmtu öld. Þar er sagt frá eyjunni Avalon þar sem Lafði vatnsins (Lady of the Lake) hafði aðsetur og stundaði andlega iðkun ásamt kynsystrum sínum.
Um hugtakið Avalon segir Ananda Tara Shan:
„Avalon er orð sem við í dag notum þegar við tölum um heilaga staði. Avalon er ekki bara einn staður á Englandi heldur er Avalon um alla jörð – staður þar sem helgar manneskjur eru til staðar, sérstaklega helgar konur. Avalon er staður fyrir prestynjur og aðstoðarsystur (novices sisters) þeirra. Þetta er staður þar sem Helgistjórnin ætti að vera til staðar. Hún er það ekki alls staðar en ætti að vera til staðar.
Orðið Avalon kemur frá – það þýðir reyndar „Eyja eplanna“. Það er mjög áhugavert með hina táknrænu merkingu, því eplin – þau eru í raun epli viskunnar. Þess vegna notuðum við alltaf epli sem gott tákn“ (Ananda Tara Shan, 2000, Avalon).