Lýsing
Hjartað er miðja tengingar við okkar innra Sjálf.
Í bókinni Hjarta mitt fjallar höfundur um mikilvægi hjartastöðvarinnar og hvernig opnun hennar leiðir til tengingar við innra Sjálfið, sálina. Með skrifum sínum um ástæður þess að margt fólk heldur hjarta sínu lokuðu, m.a. vegna sársauka og erfiðrar reynslu, og hvernig má yfirstíga þær hindranir sem felast í lokun þess, leiðir höfundur lesendur nær hjarta sínu og þeirri visku sem þar býr. Opnun hjartans færir okkur nýjan heim þar sem eining, kærleikur, góðvild, viska fegurð og friður er leiðarljósið.
Í frásögninni segir höfundur jafnframt frá áralangri reynslu sinni í að vinna að opnun hjartans.
Heimsending innanlands er ókeypis







