Bóksala Avalon-útgáfunnar
Avalon bókaútgáfan var stofnuð þegar ákveðið var að gefa kennsluefni Guðspeki-heilunarskólans út í bókarformi. Þar sem starfsemi skólans liggur niðri þótti mikilvægt að koma hinni guðspekilegu kennslu á framfæri við áhugasama. Meðal annars kennslu í hugleiðslu, andlegri heilun, um Helgistjórn jarðar, Geislana sjö, þróun mannkyns og jarðar, Lögmál endurholdgunar og Karmalögmálið. Nýjasta bókin, Hjarta mitt, um mikilvægi hjartastöðvarinnar, fjallar um þau tímamót sem mannkynið stendur frammi fyrir og þær erfiðu áskoranir sem felast í opnun hjartastöðvarinnar.






